Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Á leið til útlanda

Íþróttaálfurinn er á leið til útlanda á fótboltaleik .....Sófus vildi fara með

Sófus vill með


Jólin mín myndir

Elsa og Bolli í öndinni á Laugardag

 

 

Nú eru þau komin til Kanarí  

 

 

 

 

Sófus búin með rækjur & rjóma og lá svona þegar við komum heim .

 

Þetta kallar maður að láta sér líða vel .

 

 

 

 

Tengdó á fullu í eldhúsinu að undirbúa jólamatinn


Jólin mín

Hátíðin hófst á laugardag , þá komu Elsa og Bolli í mat ,þau eru á leið til kanarí milli jóla og nýjárs í sól  ummmmm smá öfund . Ég bauð upp á Andabringur með ávaxtasalati og sætum kartöflum ....alveg geðveikt . Rautt og hvítt og koníak á eftir ... það var líka boðið upp á eftirrétt sem engin hafði löngun í  hahahah . Yndislegt kvöld með góðu fólki .

Þorláksmessa ég átti að mætta í skötu en var hálf slöpp , unglingurinn var búin að vera með ælupest og fór það ekki vel í mig , klígjan var að fara með mig . Um kvöldið gengum við Íþróttaálfurinn niður í Jólaþorp og þaðan á A Hansen og fengum okkur að borða humar og steik , Jón Páll kom með sem fylgdarsvein . Veðrið var fallegt og hátíð yfir Hafnarfirði .

 Aðfangadagur.. Vaknaði snemma fékk í gjöf frá Kertasníki ..... Ilmvatn sturtusápu og body lotion . Íþróttaálfurinn fékk slopp og unglingurinn nærbuxur . Sniðugur karl hann Kertasníkir LoL . Unglingurinn var veikur ...greyið ömurlegur dagur fyrir ælupest . Hann fór til pabba síns . Ég og íþróttaálfurinn fórum í Blönduhlíð til Tengdó í Kalkúnn , æðislegur matur og frábær félagsskapur . Sófus var heima og fékk rækjur og rjóma

Fengum fullt af fallegum hlutum og bókum .  Takk fyrir okkur InLove

Jóladagur  það er yndislegt að vakna snjór yfir öllu þögn og friður . Lá og las borðaði ...svaf ... las. fórum svo í kaffiboð í Blönduhlíð .  Það er allt svo yndislegt og gaman að hitta ættingja og vini . Borðaði yfir mig . Leið eins og Ali gæs sem búið er að fylla . Fórum heim og eldaði kalkúnabringur með sætum kartöflum og ávaxtasalati  fyrir Frey og Erlu . Við vorum nú ekkert sérstaklega svöng Íþróttaálfurinn og ég ......

Annar í jólum  Amma á afmæli 86 ára  . Til hamingju elsku Amma .InLove Venjulega er veisla og þannig er það búið að vera í 85 ár alltaf verið haldið upp á daginn . Nei Amma sem aldrei er veik fékk lungnabólgu og liggur í rúminu  ... og engin veisla . SickÉg fór ekki úr náttfötunum allan daginn las og horfði á Sound of music .

Kv

Sigga

 

 

 


Síðasti vinnudagur fyrir jól

Gleðileg jól nú teljum við niður Jólatré

Búin að næstum öllu ...

Jæja í gær var framkvæmda dagur , fórum og keyptum rúm fyrir unglinginn ( hann fær það í jólgjöf ) Heimilið er í rúst eftir að allri innpökkun lauk ,bæti úr því í kvöld . Þarf að fara í Ikea og kaupa fataskáp fyrir unglinginn . Eftir það verður hægt að kom heimilinu í eðlilegt horf aftur . Hafið þið apáð í allt það rusl sem kemur þegar verið er að pakka inn eða bara versla ...vá er með 2 kassa fulla af rusli bréf og plast þessu þarf ég að koma á sorpu og gamlarúminu og gamali kommóðu . Það verður nóg að gera hjá mér þegar vinnu líkur í dag . Jólin koma jólin koma .......lolGrin

Jólin koma

Þetta er nú allt farið að ganga hjá mér núna . Búin að skrifa jólakort 20 stk . Búin að kaupa allar jólagjafir , nema 3 . Heimilið er í rúst eftir skriftir og innpökkun . Bakaði í gær . Allt verður tekið í gegn á morgun . Helgin á að fara í jólastuð og ég ætla að anda að mér jólaandanum . InLove

Bless Afi minn

Hann afi minn Dengsi er sofnaður svefninum langa , hann dó í svefni í nótt  .

Hann afi var skemmtilegur karl og fór í gegnum lífið glaður og hress .

Ég hef aldrei þekkt nein sem þekkti jafn marga og hann, kannski  var það þannig að hann talaði við alla .

Ég gekk eitt sinn niður laugaveginn  með honum og það tók svakalegan tíma hann þurfti að heilsa öllum og segja öllum frúm hversu fínar þær væru síðan var faðmast og kossar fuku .

Hann dansaði  mikið og hafði yndi af því ,hann elskaði að vera innan um fólk og var hrókur alls fagnaðar . Hann hafði líka mikið gaman af spilamennsku . 

Hann var ekki líkur sjálfum sér síðustu árin vegna veikinda og hefur eflaust verið glaður þegar Amma Inga  tók á móti honum . 

Bless kæri afi takk fyrir allt . 


Vinaleikur á vinnustöðum

Nú er í gangi vinaleikur í vinnunni og það er gaman , en það eru alltaf nokkrir sem eru á röngunni í svona hlutum eða yfirhöfuð alltaf neikvæðir . Ég vorkenni fólki sem er alltaf neikvætt og bölvar öllu sem er fallegt og veitir gleði .

Ég fékk mjög góðan vin sem gaf mér gjöf og sendi mér fallegan póst , hef ekki hugmynd hver hann er Ninja

 Þetta stendur í viku  og lýkur á föstudag með sameiginlegu borðhaldi og þá fáum við að vita hver átti hvaða vin 

Skemmtileg vika framundan í vinnunni  


Jólaboð

Jólaboðið á laugadagskvöld var frábært , gömul jólalög, fín matur og fullt af skemmtilegu fólki . Allir voru komnir til að eiga góða kvöldstund  saman , og þvílíkt sem var drukkið .

Þetta var sambland af boði frá 1940 og dönsku stórfjölskylduboði með Ítölsku ívafi .

Takk fyrir boðið Óli , Valdís og Stóri Bjór

Skál Wizard


Jólagleði

Dagurinn í dag var yndislegur ,við íþróttaálfurinn lögðum af stað í jólatrés leiðangur . Við fórum á hreint yndislegan stað eða upp í Skógrækt Hafnarfjarðar . Þarna upplifir maður sannan jólaanda fundum fallegt furutré og fengum heitt súkkulaði og smákökur . Veðrið í dag var stillt og kalt snjór yfir sannkallaður jóla stemmingsdagur . Úr skógræktinni fórum við í jólaþorpið í Hafnarfirði og upplifðum mjög skrítið , á sviðinu voru ungir drengir sem spiluðu dauðarokk á meðan ungir og gamlir reyndu að finna jólin . Við skemmtum okkur líka vel yfir þessu svolítið skrítið en fyndið . Núna erum við á leið í jólaboð . Meira um það síðar .

Næsta síða »

Höfundur

Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Ég er ég og verð alltaf .

Nýjustu myndir

  • ...donna_karen
  • ...nna_wintour
  • ...ne_roitfeld
  • ...g_kate_moss
  • ...moss_879728

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband