Færsluflokkur: Bloggar

Afi minn var skotinn!

Í einum þætti  fóstbræðra var því lýst þegar aðstandendur fóru með Afann út í hraun og veltu því fyrir sér hvað væri best að gera, það var of dýrt að hafa hann á hjúkrunarheimili og það skásta var að skjóta hann .

Við sáttum heima fjölskyldan og horfðum á , allt í einu argar sonur minn þá 13 ára mamma mamma þeir ætla að skjóta Afa og það reyndist rétt , hér var Afi Dengsi heitinn kominn út í hraun og það átti að skjóta hann , þetta var ekki fyndið þegar þetta stendur manni næri .

Ég get ekki haldið kjafti lengur ,grét yfir fréttum í kvöld að sjá gamalt grátandi fólk er hræðilegt .

Hvað er að þér Guðlaugur Þór , að rífa gamalt fólk af hjúkrunarheimilum og senda á sambýli Devil. 

Ætlar þú að standa fyrir fjöldaaftökum næst ,hvað gengur þér til ?. Þetta fólk er búið að þola nóg byggði upp þetta land með höndum tveim  .Sýndu þeim virðingu og hjúkraðu því ,sé það veikt , Vogaðu þér ekki að henda þessu fólki út , láttu heldri borgara í friði , við sem erum á þínum aldri tökum frekar á okkur skellinn ,við erum heilbrigð og eigum möguleika á að bjarga okkur, heldri borgarar eru búnir að skila sínu og eiga þann rétt að fá að vera í friði og þægindum og að búa við virðingu síðustu æviárin

Ég sé þig í anda í sama herbergi og fjórir aðrir með eina mynd af stórfjölskyldunni á náttborðinu, ef náttborðið  kemst fyrir annars er hún látinn undir rúmið . 

 

 

Skammist ykkar ráðamenn og þeir sem tóku þessar ákvarðanir á Norðurlandi og í Hafnarfirði. Það sama mun örugglega verða reynt annars staðar 

 


mbl.is Lýsa óánægju með vinnubrögð ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli ég fái gám eða pappakassa Jóhanna ?

Mig langar að halda áfram að tala um gjörninga þá sem við göngum í gegn um núna . Eins og staðan liggur fyrir mér og mörgum í kringum mig  er að við sjáum ekki fram á að geta borgað skuldir okkar . Það er ekki mér að kenna ég var búin að gera plön sem öll eru farin út um þúfur .

Ég er búin að skoða leiðir til að komast ekki í vanskil, allur eignarhluti minn er horfinn, allt sparifé mitt er farið . Ég skoðaði svo frystingu hjá íbúðalánasjóði ,og bara sá tími sem það tekur að skoða hvort ég sé nógu illa stödd veldur því að ég fer í vanskil , og sjáið svo hér 

Skilyrði fyrir frestun greiðslna:

  1. Að greiðsluerfiðleikar stafi af óvæntum tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, slysa, minni atvinnu, atvinnuleysis eða öðrum ófyrirséðum atvikum.
  2. Að aðrir lánardrottnar umsækjanda samþykki einnig að veita aðstoð vegna greiðsluerfiðleika.
  3. Að greiðslubyrði umsækjanda samkvæmt greiðslumati sé umfram greiðslugetu.
  4. Að greiðslubyrði umsækjanda eftir skuldbreytingu og/eða frestun á greiðslum rúmist innan greiðslugetu.
  5. Að lán sé í skilum.


Þannig strax í 5 lið er þetta úr gildi ,Þessi leið er semsagt ekki fær . Frábært með öll fögru orðin . 

Svo er það sætt að sjá að þeir selja fasteignir sem þeir taka af fólki þarna líka , en verði maður gerður gjaldþrota þá kaupir maður ekki svo glatt , Finnst ykkur þetta  ekki krúttlegt GetLost 

Ég á ekki Flatskjá, ekki Bang eitthvað hljóðkerfi og ekki Eye eitthvað phone , ég á bíl sem er á myntkörfuláni og Lýsing vil hann ekki . 

Gámarnir fyrir útigangsmennina, það gekk nú ekkert smá illa að fá þá og því er ekki enn lokið , gott væri að ríkisstjórn og bæjaryfirvöld myndu nú drífa í því að panta fleiri og finna lóðir undir þá , því eins og frammistaða þeirra er þá mun þurfa svæði á stærð við Árbæ, Breiðholt og jafnvel Kópavog undir gámabyggðina eða pappakassana .

Mér finnst líklegast að þetta verði pappakassar því ekkert verður jú fjármagnið því bankarnir og fjármagnseigendur ,vinir og vandamenn þurfa jú sitt við skiljum það alveg , við sem erum bara venjulegir skattgreiðendur hér höfum ekkert að gera við meira en pappa , við erum ekki þjóðin að þeirra mati, það eru allt aðrir og þeir flestir með lögheimili í útlöndum 

gamur.jpg

Þetta er frétt frá 14 júlí gamur_2_765953.jpg

Það hefur tafist um rúmt ár að taka í notkun smáhýsi fyrir útigangsfólk sem Reykjavíkurborg ætlaði að láta reisa. Eitt hús var reist fyrir ári og stendur autt á lóð  byggingaverktakans í Reykjavík þar sem borgin hefur ekki getað útvegað lóð fyrr en núna. Efni í fjögur önnur hús er geymt í gámi á lóð byggingafyrirtækisins.

Tugir útigangsmanna og kvenna bíða eftir húsnæði og eiga ekki í önnur hús að venda nema Konukot og Næturskýlið í Þingholtsstræti en þeir staðir hafa opið yfir nóttina en bjóða ekki upp á, að fólk geti verið heima á daginn. Fjöldi stjórnmálamanna hefur heimsótt smáhýsið eftir að það var byggt, lagst í rúmið, sest við borðið og látið í ljós velþóknun á húsnæðinu.

Loksins eftir að heilt ár er liðið og væntanlegir íbúar hafa gengið úti í misjöfnu veðri, hefur fengist lóð á leigu við Fiskislóð úti á Granda. Stefnt er að því að tvö hús verði tilbúin í September og önnur tvö fyrir áramót.

 

 Frétt frá 18 júlí 2008 ( takið eftir um hásumar - samt var þetta hægt )

Íbúðalánasjóður endurfjármagnar húsnæðislán fjármálafyrirtækja

Munið þið eftir þessu? Þetta tók ekki langan tíma og nú spyr ég voru þeir í skilum og skulduðu þau ekki neitt ? Hver heimilaði þetta ? Eru aðrar reglur fyrir þá?

Nóg í bili 

 


ALEXANDRA ÓSK HEITIR ÖMMU PRINSESSAN

Hún var skírð þann 6 des  og fékk það fallega nafn Alexandra Ósk .

fallegt_bros_j_la.jpg

 

 

 

 

 

Nú er maður 3 mánaða og farin að láta heyra í sér .

 

 j_la_alexandra_752621.jpg

  Jól jól jól 

Gleðileg jól öll 

 

Sigga 


Já við erum líkar LOL

amma_sigga_730955.jpg_nuddstol_730956.jpg

 ÉG vikugömull og Lillan 2 mán .


Prinsessan 2 mán

prinsessan_2_man2.jpgElsku prinsessan mín er 2 mán í dag hún er orðin 4,6kg og 53 cm . Þessi elska stækkar og stækkar og er svo hraust .

Amma hefur ekki getað heimsótt hana því hún er búin að vera svo kvefuð .

En um leið og það hættir kem ég hlaupandi og knúsa hana .

 

 fallegust_i_rau_u.jpg


Prinsessan er að nálgast 4 kg

Hún litla prinsessa er að verða 4 kg og er hreint út sagt yndisleg .Er nokkuð yndislegra til?
Stoltasta amma í heimi InLove
Til hamingju stelpur með EM sætið 
 bros_30_okt.jpg
fallegust_30_okt.jpg

Prinsessan komin heim

Hún er komin heim þessi elska og dafnar vel .

 

 hér er ég í stólnum á leið heim                         Og komin heim saet_i_bleiku2.jpg

heimkoma3.jpg


Prinsessan stækkar og stækkar

Nú er yndið mitt orðin 10 merkur  og 48 cm hún er svo dugleg að drekka . nú er hún laus við sonduna og tekur bæði brjóst og pela . Hún er algjört æði kjarna kona þarna á ferð .Hérna er hún hjá pabba sínum sem nú er staddur í útlöndum . 

3_vikna_693312.jpg

falleg.jpg


Prinsessan

algjor_engill.jpgSjáið hvað ég er yndisleg . Amma er svo stolt að hún er að rifna .

sofandi_prinsessa.jpgSvo er maður svo falleg og hraust . 


Ég er AMMA SIGGA

DSC00179Jæja þá er ég bara orðin stolt amma, skyndilega og allt í einu já. Litla krílið sem átti ekki að koma fyrr en 5. nóvember (eða 24. okt eins og ég spáði) gat bara ekki beðið lengur og dreif sig í heiminn í fyrrinótt, aðfararnótt miðvikudags, 17. september.

Það var pinkulítil prinsessa sem kom hágrátandi, mætt og tilbúin í lífið, 8 og hálf mörk og 44 cm. Erlu tengdó og litlu heilsast báðum vel og allt fór sem betur fer á besta veg.  Það er sem sagt allt í flæðandi hamingju hér á bæ.

Fyrir utan stolta og nýbakaða foreldrana Frey og Erlu, (til hamingju elskurnar mínar) þá er álfurinn orðinn ská-afi,  LoL og Birkir orðinn stóri frændi. Sófus er líka stóri frændi eins og staðan er í dag Happy Hef þetta ekki lengra í bili en læt hérna flakka eina mynd af prinsessu Freysdóttur. 


Næsta síða »

Höfundur

Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Ég er ég og verð alltaf .

Nýjustu myndir

  • ...donna_karen
  • ...nna_wintour
  • ...ne_roitfeld
  • ...g_kate_moss
  • ...moss_879728

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 32421

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband