Íslandsmeistarasonur

IMG 0005Ég skráði mig á Facebook á dögunum og verð að segja bara eins og er að maður á það til að gleyma því að maður er með bloggsíðu hérna á Moggablogginu. Facebook er einhver mesti tímaþjófur sem ég veit um en um leið mjög sniðugt fyrirbæri. Það eru gjörsamlega allir þarna inni og maður hittir fólk sem maður hefur ekki hitt eða talað við í mörg ár. Auk þess á maður miklu oftar samskipti við vini og kunningja sem er bara gaman.

Ég skellti mér á fótboltaleik um helgina, ja hérna já, fótboltaleik. Ég og álfur fórum með ömmu til að sjá Frey taka á móti Íslandsmeistaratitlinum sem þjálfari Vals í kvennaboltanum. Til hamningju með titilinn Íslandsmeistara-sonur sæll. Það var frekar kalt og ég fór berfætt í opnum skóm og varð svoldið kalt. Ég skellti nokkrum myndum hérna inn sem við tókum á Valsvellinum í gær laugardag. Á þessari mynd hérna að ofan erum við amma og svo hún Erla tengdadóttir mín, hans Freys.

IMG 0006
Hér er svo Freyr að stjórna liðinu í leiknum gegn Stjörnunni sem Valur vann aðeins 8-0.

 IMG 0018

Hér er Gauja mamma hennar Erlu með okkur eftir leikinn .

Um kvöldið var okkur boðið í mat til Arnars og Sollu í Dejavú. Síðar um kvöldið bættist fleira gott fólk í hópinn, Valdís og Pétur og síðast en ekki síst, foreldrar Péturs sem eru mjög hress. Takk kærlega fyrir okkur þetta var mjög gaman.

Annars er mest allt gott að frétta af okkur nema hvað ég er að farast úr kvölum við herðarblaðið, það er eins og ég sé með klemmda taug eða eitthvað. Ég veit ekkert hvernig ég á að sitja eða liggja.  Meira vesenið.  Annars erum við álfurinn einskonar hetjur. Við erum nefnilega bæði hætt að reykja. Ég hætti 18. júlí og er því að ná tveimur mánuðum núna. Álfurinn hætti svo alveg að reykja 23. ágúst og náði því fjórum vikum í gær laugardag. Og það sem meira er, reykleysið gengur bara vel hjá okkur báðum. Ekkert vesen þar.

Og bara svo hérna rétt í lokin, enn og aftur til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn Freyr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SteiniGjé..!

Til lukku með soninn..

Gaman að sjá myndir af fallegu frænku mínum á vellinum..

Það var gaman að hitta ykkur í gær, alltaf hress..

Later!

SteiniGjé..!, 14.9.2008 kl. 21:08

2 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Til hamingju...

Agnes Ólöf Thorarensen, 15.9.2008 kl. 09:00

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

Til hamingju með soninn.

Og takk fyrir síðast. Var helv.... gaman.

Pétur Kristinsson, 16.9.2008 kl. 22:17

4 Smámynd: Linda litla

Til hamingju með soninn og ekki má gleyma að segja "til hamingju með að vera hætt að reykja" frábært hjá ykkur. Úffff... ég er búin að reyna svoooo oft, en það er ekkert að ganga hjá mér. Ætti eiginlega að taka ykkur til fyrirmyndar.

Linda litla, 16.9.2008 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Ég er ég og verð alltaf .

Nýjustu myndir

  • ...donna_karen
  • ...nna_wintour
  • ...ne_roitfeld
  • ...g_kate_moss
  • ...moss_879728

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 32447

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband