14.1.2008 | 20:26
Þæginda gírinn
Vá hvað mér líður vel . Það var svo kalt á leiðinni heim, samt var ég í refnum og aldrei þessu vant vel klædd. Tók þá ákvörðun að fara strax í heitt bað og á meðan eldaði íþróttaálfurinn plokkfisk. Frábært .
Ok ég fór í bað og á meðan kom póstsending frá USA. Tvær jólagjafir sem ég verslaði á netinu .
Heppilegt, önnur var handa mér ...já ég gef sjálfri mér jólagjöf eða læt sem Sófus hafi gefið mér jólagjöf
Sniðugt
Erla tengdadóttir mín átti að fá hina, fær hana í afmælisgjöf í staðin. Góð.
Eru ekki allir spenntir ? Ég fékk slopp og innskósokka úr Victoriu Secret .
Hér sit ég ný böðuð í eldrauðum hnausþykkum slopp og röndóttum pom pom skó sokkum og líður mér eins og prinsessu .
Pósturinn er yndislegur.
Nú er ég að fara að horfa á handbolta . Skemmtilegur tími framundan
bæjó
Sigga
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 32600
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.