Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Basilíku pestó mjög gott

Basilíku pestó

1 pottur fersk basilíka

50 g furuhnetur1/2-1 dl ólífuolía1 hvítlauksrif50 g fersk rifinn parmesan Maukið í matvinnsluvél. 

Fyrir þá sem ekki borða þorramat .

Fljótlegur Kjúklingaréttur    Sneiðið sætar kartöflur í þunnar sneiðar og leggið í eldfast mót Hellið ú heilum poka af spínati yfir Hrærið saman balsamediki og olíu af fetaosti  og stráið svörtum pipar yfir .Veltið kjúklingabringum upp úr blöndunni og leggið þær síðan ofan á spínatið Hellið rest af legi yfir .Dreifið Feta osti yfir .Bakið  í ofni  í u.þ.b. 40mín , við 200 gráðu hita .  Namm Verði ykkur að góðu

Kaupæði

Ég veit ekki hvað hefur gripið mig , en síðustu daga hef ég þurft að kaupa já og kaupa Ok .

Ég er búin að kaupa mér dragt , 2 peysur , 2 buxur , kápu , jakka.  Leður stígvél háhæla og önnur leður stígvél á negldum HAHAHA (ekki að mig hafi vantað stígvél á einhver 10 ) . Gönguskó vatnshelda fóðraða . Keypti líka skó á íþróttaálfinn ( svona til að friða samviskuna ) .


Kveðjupartý

Ég hélt kveðjupartý á föstudaginn . Mínir yndislegu vinnufélagar klikkuðu ekki á vitleysuni fóru alveg á kostum það var hlegið , grátið , leikið og dansað .Kveðjupartý Siggu 2008 004Fólk var mis gáfulegt Palli klikkar ekki .

 

Leikþáttur Það var leikþáttur um ferill minn innan firmans . Mikið hlegið

Ljóðalestur Ljóðalestur til að hafa þetta með menningarbrag úpps

Svenni  Devil

Drykkja Eitthvað var drukkið

DansOg svo var líka dansað .

Takk fyrir mig kæru vinir

KV

Sigga


Breytingar

Já núna er að koma að því , ég er búin að halda í mér að segja frá .Blush  Vá hvað ég er dularfull hahahahh

Ég ætla að skipta um vinnu , og hætti næsta fimmtudag . Ég er að fara aftur í gamla starfið mitt þar sem ég hætti fyrir  3 árum . Ég  hlakka mikið til en það er líka alltaf viss söknuður , maður er að yfirgefa stað þar sem manni hefur liðið vel . Á nýja staðnum mun ég aftur hitta fólkið sem ég saknaði mjög mikið þegar ég hætti þar á sínum tíma . Allar breytingar sem maður er sáttur við eru til góðs .

Maður er búin að kynnast fleira fólki og læra fullt af nýjum hlutum, þannig er lífið Grin


Mér finnst !!!!

Hvað er að gerast í þáttagerð á Íslandi .

Ég var að flakka á milli sjónvarpsstöðva og lenti á Ínn .

Vá þetta var eins og að lenda í kaffiboð hjá 5 EGÓ  konum sem allt þóttust vita og höfðu lausnir á öllu .

Þarna sáttu Kolfinna , Elísabet , Ellý , Ásdís og Katrín . Það kom fram að það væri ekkert mál að skilja og við þurfum enga karlmenn í okkar líf , Við þurfum bara faðmlag er ekki allt í lagi ok ég hélt áfram að hlusta og horfa , þær tala hver í kapp við aðra .

Elísabet tjáði okkur það að hún væri inni á geðdeild vegna þunglyndis hafði fengið höfuðverk og farið á bráðamóttöku þar sem læknir tjáði henni að hún væri þunglynd  OK og þær misstu sig í gleði yfir því . Ellý spurði hana hvort hún fengi stíla í rassinn inn á geðdeild , nei hún hafði bara fengið raflost og lyf mikið hlegið af því . Næst var það að borðið var ný lakkað og þær eflaust allar í vímu útaf því hlógu og hlógu . Vá næst kom að allir þeir sem væru að skilja ættu að fara á geðdeild (Kolfinna ) . Ásdís hefur líka farið á geðdeild vegna kvíðakasta og sagan kom hún rifbeinsbrotnaði og hélt að hún væri að deyja var stödd upp í sveit. Þarf ég að vita þetta NEI . Ellý sem er spákona situr þarna mjög dulræn og virðist vera að lesa í framtíðina og spyr hvort hún hafi tekið ákvörðun um að vera ekki hrædd Nei hún las bók .

Katrín kom með lausn, klípa sig þar sem maður finnur ekki til þá tekur það athyglina frá því sem að er . Ja hérna hér .

Ég þarf hjálp eftir þetta áhorf .

Þetta var einhver sá mesti EGÓ þáttur sem ég hef séð .  


Jarðaför

Afi íþróttaálfsins er fallin frá og verður jarðaður í dag . Hann var orðin veikur og var eflaust fegin því að fá að fara þó alltaf sé sárt að kveðja . Blessuð sé minning hans .

Flutningar

Vinnustaðurinn minn er að flytja . Við fluttum lagerinn á föstudag og laugardag .

Undirbúningur var á fimmtudag . Við dúkkurnar á skrifstofunni vorum í hlutverki teljara klæddar í vinnugalla dúðaðar eins og leikskólabörn .

Kom heim kl 21 á föstudagskvöld búin að vera , hraut eins og togarajaxl .

Af stað á laugardag nú var að koma vörunum fyrir á nýjastaðnum og að telja frystin .

Vá rúllaði mér í slopp eftir bað kl 19 og sat svo og dottaði til 23 .

 Við vorum svo dugleg , að vinna var engin á sunnudag  WizardGeðveikt . Las Arnald og sá ekki rykið heima hjá mér .


Harmleikur

Þetta er alveg skelfilegt og hvað ætli drengurinn hafi verið að hugsa .

Alveg gjörsamlega heilalaust athæfi .

Drengurinn þarf hjálp .

 


mbl.is Talinn hafa barið 17 mánaða gamla stúlku til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegur maður

Ekki bara fallegur og góður leikari heldur velhugsandi og gefur af sér .

Þetta mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar .


mbl.is Depp gefur sjúkrahúsi peningagjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Sigríður Þóra Magnúsdóttir
Ég er ég og verð alltaf .

Nýjustu myndir

  • ...donna_karen
  • ...nna_wintour
  • ...ne_roitfeld
  • ...g_kate_moss
  • ...moss_879728

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 32453

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband