Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
21.5.2008 | 22:32
Hvar var Sigga ?
Hæ öll
Það hefur verið mikið að gera þennan mánuð úppss . Mánuðurinn byrjaði með svakagleði með yndislegu fólki á Hótel Geysi . Árshátíð DéjaVu og stjórnarfundur , gist var í litlum húsum ,frábær
aðstaða í alla staði það var nuddbaðker í svefnherberginu .
Maturinn var mjög góður og þjónustan frábær . Álfurinn var kosinn í stjórn þannig að minn mun hafa nóg að gera . Takk fyrir allt kæru vinir .
Það er búið að vera mjög gaman í vinnunni nóg að gera og skemmtilegt fólk .
Um síðustu helgi var Óvissuferð með Eurovision þema ,farið var í smá siglingu til blekkingar . Eftir siglingu var gengið í sal nálægt kaffivagninum ,þar var allt skreyt og matur og vín á langborði .Sumir voru í búningum skrautlegum í anda Eurovision og tónlistin ...hvað haldið þið Daddi diskó sá um hana og stóð sig mjög vel að vanda .
Einar Ágúst tróð upp og vakti mikla lukku , spilaði og söng eins og hann einn getur . Hápunktur kvöldsins var þegar Selma kom og tók nokkur lög þá ætlaði allt að verða vitlaust og fólk dansaði villt fram á nótt .
Daginn eftir var Brúðkaup ....Signý og Dóri giftu sig í Háteigskirkju , falleg athöfn . Veislan var haldin í sal Háteigskirkju . Mjög fallegt og skemmtilegt brúðkaup . Góður matur og allir glaðir . Álfurinn var veislustjóri og stóð sig mjög vel mikið hlegið, góðar ræður ,spilað, sungið og dansað .
Til hamingju Signý og Dóri
Vá ég var ekki til á sunnudaginn gerði ekkert .
Núna er komið sumar , páskaliljur spretta upp í garðinum og enda inni í vösum til að gleðja augað
Lífið er yndislegt
Til hamingju með daginn á morgun elsku Elsa
Bæ í bili
Sigga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar