21.5.2008 | 22:32
Hvar var Sigga ?
Hæ öll
Það hefur verið mikið að gera þennan mánuð úppss . Mánuðurinn byrjaði með svakagleði með yndislegu fólki á Hótel Geysi . Árshátíð DéjaVu og stjórnarfundur , gist var í litlum húsum ,frábær
aðstaða í alla staði það var nuddbaðker í svefnherberginu .
Maturinn var mjög góður og þjónustan frábær . Álfurinn var kosinn í stjórn þannig að minn mun hafa nóg að gera . Takk fyrir allt kæru vinir .
Það er búið að vera mjög gaman í vinnunni nóg að gera og skemmtilegt fólk .
Um síðustu helgi var Óvissuferð með Eurovision þema ,farið var í smá siglingu til blekkingar . Eftir siglingu var gengið í sal nálægt kaffivagninum ,þar var allt skreyt og matur og vín á langborði .Sumir voru í búningum skrautlegum í anda Eurovision og tónlistin ...hvað haldið þið Daddi diskó sá um hana og stóð sig mjög vel að vanda .
Einar Ágúst tróð upp og vakti mikla lukku , spilaði og söng eins og hann einn getur . Hápunktur kvöldsins var þegar Selma kom og tók nokkur lög þá ætlaði allt að verða vitlaust og fólk dansaði villt fram á nótt .
Daginn eftir var Brúðkaup ....Signý og Dóri giftu sig í Háteigskirkju , falleg athöfn . Veislan var haldin í sal Háteigskirkju . Mjög fallegt og skemmtilegt brúðkaup . Góður matur og allir glaðir . Álfurinn var veislustjóri og stóð sig mjög vel mikið hlegið, góðar ræður ,spilað, sungið og dansað .
Til hamingju Signý og Dóri
Vá ég var ekki til á sunnudaginn gerði ekkert .
Núna er komið sumar , páskaliljur spretta upp í garðinum og enda inni í vösum til að gleðja augað
Lífið er yndislegt
Til hamingju með daginn á morgun elsku Elsa
Bæ í bili
Sigga
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hélt nú bara að þú værir búin að yfirgefa bloggheiminn, það er svo langt síðan þú hefur sést hérna. En það er greinilega búið að vera nóg að gera hjá þér.
hafðu það gott og áfram Ísland í júró.
Linda litla, 22.5.2008 kl. 08:26
Gaman að sjá að bloggarinn í þér hafi ekki látist í heita pottinum á Geysi
Pétur Kristinsson, 22.5.2008 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.