5.8.2008 | 17:37
Sumarið er tíminn
Sorry hvað ég hef verið léleg að blogga , það er búið að vera mikið að gera í lífinu . Núna ætla ég að segja ykkur af því í stórum dráttum .
Eftir Þórsmörk var haldið á ættarmót hjá álfinum og gleymdi ég myndavél , ættarmótið var mjög skemmtilegt en veðrið var hræðilegt og mun ég ekki fara í tjald nema auðvitað inn í mörk . Það rigndi og rigndi og ég er ekki gerð fyrir svona óþægindi , álfurinn elskar þetta ,ég er meira svona 5 stjörnu manneskja .
Helgina þar á eftir vorum við með matarboð og þar bauð Óli kóngur upp á hreindýr í aðalrétt og keilu í forrétt , þetta var frábær matur og takk öll þið eruð æði . Verslunarmannhelgin var róleg og það má segja að ég hafi verið ein heima með Sófusi , Birkir var í eyjum og álfurinn að vinna . Ég tók til í skápum og slappaði af ,það þarf stundum að gera það líka .
Veðrið hefur verið yndislegt og hef ég notið þess í botn að geta verið úti og dundað mér . Mér finnst svo yndislegt þegar veðrið er lygnt og hægt er að kveikja á kertum úti þegar skyggja tekur það er einhver rómantík í því
Kveðja
Sigga
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.