22.11.2007 | 10:01
Hugsum aðeins það eru ekki allir eins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2007 | 09:01
Viðbjóður
Guðmundur Rúnar Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður
Ástæða þessa erindis míns kemur ekki til af góðu en ég tel rétt að allir fái að vita af þessu og hafi til hliðsjónar.
Ég fór í fíkniefnaleit með hundinn minn í ónefndan verslunarkjarna og eðli málsins samkvæmt beindist sú leit mikið til að almenningssalernum sem þar eru. Það sem vakti athygli mína var það að hundurinn minn sýndi 3 klósettrúlluhöldurum áhuga og var klósettpappír inni í þeim öllum. Ég benti öryggisverðinum sem fylgdi mér á þetta og sagði hann mér að það hafi komið þó nokkrum sinnum að starfsmenn sem vinna við þrif hafi fundið notaðar sprautur og nálar á klósettunum eftir fíkniefnaneytendur og þá hafi einnig komið fyrir að áðurnefndir fíkniefnaneytendur hafi, eftir að hafa sprautað sig, stungið nálunum upp í gegn um klósettrúllurnar til að hreinsa þær og þannig skilið eftir örlitla blóðbletti í ónotuðum pappírnum. Þetta vakti með mér óhug og spurningar og mér finnst rétt að þið vitið af þessu.
Nú er svo komið að fólk verður að finna aðrar leiðir . Eina leiðin til að vera öruggur er að vera heima . Maður er sektaður sé það gert úti . Og maður á von á því að smitast af lífshættulegum sjúkdómum noti maður almenningssalerni .
Heimur versnandi fer .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2007 | 08:30
Myrkur

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2007 | 18:47
Ísland /Danmörk
Það er svo skrítið með mig að innst inni ....veit það ekki raunhæft (Danir fleiri og sagðir betri, Eiður Smári ekki með ), en ég hugsa að strákarnir vinni þennan leik , en samt leyfi ég mér að finnast það ...við gætum það alveg .
Ég segi þetta engum en ég held samt að leikurinn fari 1-0 fyrir okkur .
Hef ekki huns vit á þessu en svona er þetta nú samt . Sjáum til .
Kannski er ég brjáluð eða bara svona brjálæðislega mikill bjartsýnismanneskja , held að bæði sé ágæt.
Hver kaupir ekki Lottó og ætlar að vinna , ég ætla að vinna í lottó í kvöld . . Ef maður trúir ekki gerist ekkert.
Verum bjartsýn og brosum framan í heiminn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2007 | 17:06
Fallegur dagur
Fór að heiman í myrkri , en aldrei þessu vant kom heim í björtu . Veðrið er yndislegt, hugsaði um það alla leið heim hversu frábært væri nú að eiga hund hefði ég þá afsökun til að fara út að ganga.. þvílík afsökun ,. Á Sófus (skógarköttur ) sem gengur með mér þegar ég hætti mér út . Íþróttaálfurinn (Sambýlismaðurinn )er líka heima hann hefði eflaust viljað ganga með mér . Unglingurinn (yngri drengurinn) er líka heima ..en hefði ekki tekið í mál að ganga með mér . Steig út úr bílnum fyrir utan heima þvílíkur kuldi ( fór reyndar að heiman í stuttpilsi og þykkum sokkabuxum ) OK það var sól en skít kalt . Þegar inn var komið var stefnan tekin á það að skoða frystikistuna sem tilvonandi tengdapabbi lét okkur hafa ( sagði að hún væri lítill ) hún fyllir út í þvottahúsið. Íþróttaálfurinn er búinn að ræða við frúna sem við deilum þvottahúsinu með og fékk leyfi fyrir gripnum . Ekkert úr gönguferð, Sófus liggur á hjónarúminu og hefur engan áhuga á göngu , Íþróttaálfurinn er að undirbúa sig og okkur fyrir landsleik Ísland -Danmörk . Panta pizzu sækja pizzu . Unglingurinn NEI . Þannig að nú væri gott að eiga hund .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.8.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar